top of page

Primula x polyantha 'Arctic Mix'

Ljómalykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10 -15 cm

Blómlitur

blandaðir litir, gulur, rauður, fjólublár, bleikur eða hvítur

Blómgun

apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, rakur

pH

hlutlaust

Harðgerði

getur þrifist við góð skilyrði

Heimkynni

garðaafbrigði

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við 15-18°C fram að spírun.

Fræsort af ljómalykli sem er nægilega harðgerð til að geta lifað úti við góð skilyrði.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page