top of page

Primula x polyantha

Ljómalykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10 -15 cm

Blómlitur

blandaðir litir, gulur, rauður, fjólublár, bleikur eða hvítur

Blómgun

apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, rakur

pH

hlutlaust

Harðgerði

viðkvæmur, lifir varla úti

Heimkynni

garðaafbrigði

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar eða að vori.

Fræ ekki hulið og haft við 15-18°C fram að spírun.

Seldur sem pottaplanta á vorin, lifir ekki veturinn úti. Getur lifað í köldu gróðurhúsi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page