top of page

Primula x pruhoniciana 'John Mo'

Elínarlykill

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 10 -15 cm​

Blómlitur

fölgulur

Blómgun

byrjun apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

lífefnaríkur, frjór, rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

garðaafbrigði

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.

Fyrsti lykillinn til að blómstra á vorin. Harðgerður og auðræktaður. Elínarlykill er hópur blendinga júlíulykils (P. juliae) og laufeyjarlykils (P. vulgaris).

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page