top of page

Primula x pubescens (I)

Frúarlykill (fjallaáriklur)

Maríulykilsætt

Primulaceae

Hæð

lágvaxinn, 10 - 15 cm​

Blómlitur

gulur, hvítur, bleikur, rauður eða fjólublár

Blómgun

byrjun maí - júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

lífefnaríkur, frjór, rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði

Maríulyklar, Primula, er geysistór ættkvísl um 500 tegunda í maríulykilsætt, Primulaceae. Tegundir ættkvíslarinnar dreifast víða, en mestur tegundafjöldi, um helmingur, vex í Himalajafjöllum. Þær vaxa því við breytileg skilyrði, sumar eru úrvals steinhæðaplöntur, aðrar kunna vel við sig í djúpum, frjóum jarðvegi og skugga part úr degi. Flestar eiga það þó sameiginlegt að þola illa þurrk.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð síðvetrar.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Ef fræ hefur ekki spírað eftir mánuð, gæti hjálpað að kæla fræið í 2-4 vikur og hafa það svo aftur við stofuhita fram að spírun.

Frúarlykill er stór flokkur blendinga mörtulykils (P. auricula) og annarra tegunda í árikludeild. Garðaáriklur hafa mélug blöð og blóm eins og mörtulykill en fjallaáriklur ekki.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page