top of page

Ranunculus repens 'Pleniflorus'

Skriðsóley

Sóleyjaætt

Ranunculaceae

Hæð

lágvaxin, um 30 cm

Blómlitur

gulur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

frjór, rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

garðaafbrigði, tegundin vex villt í Evrópur, Asíu og NV-Afríku

Sóleyjar, Ranunculus, er stór ættkvísl um 600 tegunda í sóleyjaætt, Ranunculaceae, með heimkynni víða um heim. Latneska heitið þýðir lítill froskur og vísar í að flestar tegundir vaxa í rökum jarðvegi. Flestar blómstra að vori eða snemmsumars, oftast gulum blómum en nokkrar tegundir blómstra hvítum eða grænleitum blómum. Þær þrífast yfirleitt best í sól þó skriðsóleyin ástkæra vaxi vandræðalaust hvar sem er, jafnvel á stöðum sem sjá aldrei til sólar.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.

Garðaafbrigði með fylltum, gulum blómum sem dreifir sér ekki eins mikið og tegundin. Tegundin er magnað illgresi sem dreifir sér bæði með fræi og ofanjarðarrenglum og er mjög erfitt að uppræta hana.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page