top of page

Saxifraga rotundifolia

Dröfnusteinbrjótur

Steinbrjótsætt

Saxifragaceae

Hæð

lágvaxinn, blómstönglar geta orðið 20-30 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní - júlí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

hálfskuggi - skuggi

Jarðvegur

vel framræstur, frjór, rakur

pH

súrt-hlutlaust

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

fjöll í Evrópu og M-Asíu

Steinbrjótar, Saxifraga, er stærsta ættkvísl steinbrjótsættar, Saxifragaceae, með um 440 tegundir sem dreifast um nyrðra tempraða beltið. Latneska heitið þýðir bókstaflega steinbrjótur og er talið vísa til vaxtaskilyrða margra tegunda sem vaxa í klettasprungum og grjótskriðum hátt til fjalla. Aðrar tegundir eru heldur stórvaxnari og vaxa á rökum engjum, en flestar tegundir, jafnvel þær sem vaxa í klettum vaxa þar sem raki er í jörðu eða vatn seitlar fram. Nokkrar tegundir vaxa villtar á Íslandi (*).

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í janúar - mars.

Fræ hefur stutt geymsluþol og ætti að geymast í kæli þar til því er sáð.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Eldra fræ gæti þurft að standa úti einn vetur til að spíra.

Harðgerð, skuggþolin tegund sem þarf frekar rakan jarðveg.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page