top of page

Saxifraga trifurcata

Kvíslsteinbrjótur

Steinbrjótsætt

Saxifragaceae

Hæð

lágvaxinn, um 10 - 15 cm

Blómlitur

hvítur

Blómgun

júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, rakur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerður

Heimkynni

fjöll á N-Spáni

Steinbrjótar, Saxifraga, er stærsta ættkvísl steinbrjótsættar, Saxifragaceae, með um 440 tegundir sem dreifast um nyrðra tempraða beltið. Latneska heitið þýðir bókstaflega steinbrjótur og er talið vísa til vaxtaskilyrða margra tegunda sem vaxa í klettasprungum og grjótskriðum hátt til fjalla. Aðrar tegundir eru heldur stórvaxnari og vaxa á rökum engjum, en flestar tegundir, jafnvel þær sem vaxa í klettum vaxa þar sem raki er í jörðu eða vatn seitlar fram. Nokkrar tegundir vaxa villtar á Íslandi (*).

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í febrúar - mars.

Fræ ekki hulið og haft við 15-20°C fram að spírun.

Þolir illa þurrk, verður fallegastur þar sem jarðvegur er jafnrakur.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page