top of page

Sedum spathulifolium var. purpureum

Spaðahnoðri

Helluhnoðraætt

Crassulaceae

Hæð

lágvaxinn, um 5 - 10 cm​

Blómlitur

gulur

Blómgun

ágúst - september

Lauflitur

gráfjólublár - rauðfjólublár

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

sagður nokkuð harðgerður

Heimkynni

garðaafbrigði, tegundin vex villt í vestanverðri N-Ameríku

Hnoðrar, Sedum, er stór ættkvísl allt að 600 tegunda í helluhnoðraætt, Crassulaceae, með útbreiðslu víða um norðurhvel jarðar. Þetta eru jurtkenndir eða runnkenndir þykkblöðungar sem þola mikinn þurrk og þrífast best í sól.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í mars.

Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun.

Þurrkþolinn. Þarf mjög gott frárennsli og sólríkan stað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page