top of page

Silene acaulis

Lambagras

Hjartagrasaætt

Caryophyllaceae

Hæð

lágvaxið, um 5 - 10 cm

Blómlitur

ljósbleikur

Blómgun

maí - júní

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

grýttur, vel framræstur

pH

hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgert við rétt skilyrði

Heimkynni

fjöll og heimskautasvæði á norðurhveli, m.a. á Íslandi

Hjartagrös, Silene, er stærsta ættkvísl hjartagrasaættar, Caryophyllaceae, með útbreiðslu um allan heim, með mestan tegundafjölda á norðurhveli. Hjartagrös vilja vera sólarmegin í  lífinu, margar lágvaxnar tegundir eru úrvals steinhæðaplöntur. Ein tegund, lambagras, vex villt á Íslandi.

Fjölgun:


Sáning - sáð í september - nóvember.

Fræ ekki hulið og haft úti fram á vor. Ef fræ spírar ekki við hitastig úti er það fært inn í stofuhita eða gróðurhús.

Myndar þéttar þúfur, um 5 - 10 cm á hæð. Þarf grýttan, malarkenndan jarðveg og sólríkan stað. Fer vel í steinhæð. Íslensk jurt.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page