top of page

Viola sororia 'Famecheck Apricot'

Systrafjóla

Fjóluætt

Violaceae

Hæð

lágvaxin, ca. 10 cm

Blómlitur

ferskjugulur

Blómgun

apríl - maí

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur, lífefnaríkur, rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð

Heimkynni

austanverð N-Ameríka

Fjólur, Viola, er stærsta ættkvísl fjóluættar, Violaceae, með mesta útbreiðslu um nyrðra tempraða beltið. Þó vaxa nokkrar tegundir á suðurhveli, t.d. í Andesfjöllum og Ástralíu. Flestar eru lágvaxnar jurtir en örfáar tegundir eru runnkenndar og nokkrar tegundir í Andesfjöllum eru þykkblöðungar. Best þekktar og mest ræktaðar eru stjúpur og fjólur ræktaðar sem sumarblóm, en nokkrar fjölærar tegundir eru ræktaðar í görðum. Fimm tegundir vaxa villtar á Íslandi, birkifjóla, mýrfjóla, skógfjóla, týsfjóla og þrenningarfjóla.

Fjölgun:


Skipting að vori eða hausti.


Sáning - sáð í febrúar - mars.

Fræ rétt hulið og haft við 15 - 20°C fram að spírun.

Harðgerð og auðræktuð, en getur verið treg til að blómstra.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page