top of page

Burknar

Public·1 member

Adiantum pedatum 'Imbricatum'


Gyðjuhár


ree

Ég rakst á þennan burkna í vor og ákvað að prófa, því ég er svo hrifin af venusarhári og gyðjuhárið líkist því mjög. Það virðist einhvernveginn ekki bera það með sér að þola mikinn kulda og trekk, og það vill vissulega vera í skjóli, en á þó að þola hörkufrost. Það kemur í ljós í vor. Það þarf vel framræstan, lífefnaríknan, rakan jarðveg í hálfskugga eða skugga. Og það sakar örugglega ekki að hylja það vel með laufi eða moltu fyrir veturinn.

20 Views
Rannveig
Rannveig
27 de mai. de 2023

Keypti mitt í Storð fyrir ca. þremur árum. Veit ekki hvort það fæst þar enn. Held að mitt sé tapað.

Dryopteris expansa

Dílaburkni


ree

Dílaburkni er frekar stórvaxin, íslensk tegund eins og fjöllaufungur og stóriburkni. Hann er frekar sjaldgæfur, algengastur á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Reykjanesi. Laufið er fínskiptara en á stóraburkna, en ekki eins fínskipt og á fjöllaufungi. Ég hef átt þessa plöntu í mörg ár og hann hefur þrifist afar vel, semsagt harðgerður og auðræktaður. Kjöraðstæður eru frjór, vel framræstur, lífefnaríkur, rakur jarðvegur á skuggsælum og skjólsælum stað.

9 Views

Athyrium filix-femina 'Dres Dagger' - Fjöllaufungur


ree

Sérkennilegt yrki af fjöllaufungi sem ég rakst á í gróðrarstöð í sumar og stóðst ekki mátið að prófa. Vonandi lifir hann vel.

40 Views
maggahauks
maggahauks
30 de dez. de 2019

http://www.floraislands.is/BURKNAR/athyrfil.html

Polystichum setiferum 'Plumosum Densum' - Burstauxatunga


ree

'Plumosum Densum' er yrki af burstauxatungu eða burstaburkna eins og hann hefur líka verið kallaður. 'Plumosum Densum' þýðir þétt, fjaðrað lauf, og það lýsir þessu yrki vel. Það er lágvaxið og þétt og virðist þrífast ágætlega.

31 View

Garðaflóra slf.
kt: 550421-1430

vsk. nr.: 140886
Suðurgötu 70, 220 Hafnarfirði

S: 780-8875

gardaflora@gardaflora.is

Opnunartími:
 

Eingöngu vefverslun

Afhending sóttra pantana

eftir samkomulagi

Opnunartími garðplöntusölunnar birtist hér á síðunni og á Facebook síðu Garðaflóru

  • Facebook App Icon
  • Instagram
  • bluesky-seeklogo
bottom of page