Delphinium 'Black Knight'
Riddaraspori
Riddaraspori er hávaxin, fjölær planta sem blómstrar í júlí - ágúst. Blómstönglarnir eru langir og þungir og því er góður stuðningur nauðsynlegur til að halda plöntunum í uppréttri stöðu.
'Black Knight' er sort sem blómstrar dökk fjólubláum blómum með svartri miðju. Verður um 160 cm á hæð.
Fræ frá Jelitto.
Sáningartími: febrúar - mars. Fræ hulið og haft á dimmum stað, við stofuhita (amk 22°C) fram að spírun.
20 fræ í pakka