Heuchera 'Cajun Fire'
Roðablóm
'Cajun Fire' er roðablómsyrki með litríku laufi í bronsrauðum og vínrauðum litatónum.. Blómin eru kremhvít.
Óreynt yrki. Þarf gott frárennsli og vetrarskýling eykur lífslíkur í hörðum frostum.
1 stk. í 11x11 cm potti.
Ræktunarleiðbeiningar
Roðablóm geta vaxið í sól eða hálfskugga og þurfa vel framræstan jarðveg. Þau eru viðkvæm fyrir blautum jarðvegi yfir vetrarmánuðina.