Klifurbaunir 'Hestia'
Phaseolus coccineus
Klifurbaunir blómstra rauðum blómum og þroska æta belgi.
'Hestia' er yrki með tvílitum blómum, hvítum og rauðum. Það verður ekki nema um 50 cm á hæð og hentar því vel til ræktunar í pottum t.d. á pöllum eða svölum. Það þroskar mikið magn af baunabelgjum sem hægt er að borða í heilu lagi og með því að týna belgina áður en baunirnar þroskast heldur blómgun áfram fram eftir öllu sumri. Reynsla hér á landi óþekkt.
Sáð beint út í júní eða sáð í maí og forræktað í pottum inni. Ef þær eru forræktaðar í pottum er passlegt að sá 5 stk. í 2 l pott og gróðursetja svo í heilu lagi út, því baunir þola illa prikklun. Einnig hægt að rækta áfram í stærri potti. Mikilvægt er að halda moldinni rakri fram að spírun. Gott er að breiða akrýldúk yfir á meðan plönturnar eru að ná sér á strik.
10 fræ í pakka