top of page
Pink sweet pea flowers of Lathyrus Mrs. R. Bolton
  • Lathyrus odoratus 'Mrs. R. Bolton'

    Ilmertur

     

    Ilmertur eru einærar klifurjurtir sem geta vaxið upp eftir runnum, klifurgrindum eða hverju því sem þær ná að festa sig í. Þær blómstra stórum, oft mikið ilmandi blómum í flestum litum að gulum undanskildum. Geta náð yfir 2 m hæð.

     

    'Mrs. R. Bolton' blómstrar ljósbleikum blómum sem eru hvít næst miðju.

     

    Sáð í mars - apríl. Fræ lagt í bleyti í volgu vatni í 24 klst. áður en því er sáð. Fræ hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Best er að sá 5-6 fræjum í sáningarbox og dreifplanta svo í heilu lagi í 2 l pott til að rækta áfram því þær þola illa dreifplöntun. Ilmertur eru frekar á bæði vatn og næringu, svo mikilvægt er að passa að moldin þorni ekki og að þær fái næga næringu.

     

    15 fræ í pakka

      210krPrice
      Tax Included
      Quantity
      Out of Stock

      Tengdar vörur

      bottom of page