Mimulus F1 'Magic Wine'
Fiðrildatrúður (Mimulus x hybridus)
'Magic Wine' er sort sem blómstrar rauðbleikum blómum. Hún er þétt í vexti og verður um 22 cm á hæð.
Fræ frá Moles Seeds.
Sáð í febrúar-mars. Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun 6-7 vikum eftir sáningu. Þarf sólríkan vaxtarstað og rakan jarðveg.
20 fræ í pakka