Petunia F1 'Sophistica Blackberry'
Tóbakshorn (grandiflora)
Tóbakshorn henta vel í ker og út í beð. 'Sophistica Blackberry' er með dökkvínrauðum blómum.
Sáð í febrúar. Fræ ekki hulið og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 7-10 daga við 20°C. Prikklað eftir 4 vikur og 12 vikur frá sáningu að blómgun.
10 fræ í pakka