Lilium 'Guinea Gold'
Túrbanliljublendingur (Martagon)
Túrbanliljublendingar eru hávaxnir, um 65-120 cm á hæð eftir sortum. Blómin eru smá, túrbanlaga í stórum, margblóma klösum.
'Guinea Gold' verður um 90 cm á hæð og blómstrar apríkósugulum og hvítum blómum með hvítri bakhlið.
3 laukar í 2 l potti
Ræktunarleiðbeiningar
Liljur eru fallegar garðplöntur sem tilheyra ættkvíslinni Lilium í liljuætt (Liliaceae). Margar eru fjölærar hér, eins og t.d. asíublendingarnir, og þær þurfa ekki forræktun inni. Þeim má planta beint út að vori. Vaxtarstaðurinn þarf að vera sólríkur og skjólgóður og jarðvegurinn þarf að vera frjór, vel framræstur og lífefnaríkur.
Aðrir liljuflokkar, eins og t.d. austurlandaliljurnar, eru viðkvæmari og verða ekki langlífar utandyra hérlendis. Þær má rækta í pottum og geyma í gróðurhúsi eða kaldri geymslu yfir vetrarmánuðina.
Hávaxnar sortir þurfa góðan stuðning.