Túlipani 'Angélique' (5 stk)
Túlipani (Double Late)
'Angélique' er seinblómstrandi túlipani sem blómstrar fylltum, bleikum blómum.
5 stk. í pakka.
Áætlað verð er 630 kr. Hægt er að forpanta með því að greiða staðfestingargjald, 400 kr. Reikningur fyrir eftirstöðvum verður svo sendur út fyrir afhendingu í september.
Ræktunarleiðbeiningar
Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér. Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki. Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.