Verbena 'Peaches and Cream'
Járnurt
Járnurt er sumarblóm sem hentar vel í ker, hengipotta og út í beð. 'Peaches and Cream' er afbrigði með ferskjubleikum blómum.
Sáð í febrúar. Fræ rétt hulið með þurrum vikri og haft við stofuhita í myrkri fram að spírun. Gæta þarf þess að mold sé ekki of rök fram að spírun. Spírun eftir 3 vikur við 18-25°C. Blómstrar eftir 12-14 vikur frá sáningu.
10 fræ í pakka