Cosmos 'Apricotta'
Brúðarstjarna
Brúðarstjarna er sumarblóm sem hentar vel í ker og út í beð. 'Apricotta' er hávaxið afbrigði með sterkum blómstönglum sem blómstrar ferskjubleikum blómum. 60-80 cm á hæð.
Sáð í janúar-febrúar. Fræ rétt hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Spírun eftir 7-10 daga. Prikklað eftir 3 vikur, best er að prikkla beint í amk. 10 cm pott eða umpotta í stærri pott eftir ca. mánuð til að plönturnar nái góðri stærð. Blómgun um 12 vikum frá sáningu.
20 fræ í pakka