Muscari 'Pink Sunrise' - perlulilja
Perlulilja
'Pink Sunrise' er yrki af perlulilju sem blómstrar fölbleikum, perlulaga blómum í uppréttum klösum. Ófrjóu blómin efst í klasanum eru hvít. Er fjölær, en blómstrar ekki á hverju ári.
Verður um 15-20 cm á hæð.
(Áætlað verð: 8 stk á 1300 kr. / 100 stk á 12840 kr.)
8 stk í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Perluliljur (Muscari) eru yfirleitt fjölærar hér, en blómgun er ekki árviss. Þær blómstra yfirleitt á nokkurra ára fresti, hversu langt líður á milli blómgunar er misjafnt eftir yrkjum. Þær þrífast best á frekar sólríkum stað í vel framræstum, rökum jarðvegi.