top of page
Narcissus cyclamineus 'Jetfire' - febrúarlilja

Narcissus cyclamineus 'Jetfire' - febrúarlilja

Febrúarlilja (Cyclamineus)

 

'Jetfire' blómstrar smáum gulum blómum með aftursveigðum krónublöðum og appelsínugulri, lúðurlaga hjákrónu. 

Verður um 30 cm á hæð. 

 

(Áætlað verð: 8 stk á 830 kr. / 50 stk á 3860 kr.)

 

8 stk í pakka

  • Ræktunarleiðbeiningar

    Hátíðarliljur (páskaliljur) eru fjölærar og í flestum tilvikum harðgerðar. Þær vaxa best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna.  Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.

kr740Price
VAT Included
Out of Stock

Related Products