Narcissus 'Falmouth Bay' - hátíðalilja
Hátíðalilja (Small Cup)
'Falmouth Bay' er afbrigði af hátíðalilju með stuttri bollalaga hjákrónu sem blómstrar hreinhvítum blómum.
Verður um 50 cm á hæð.
(Áætlað verð: 6 stk á 1230 kr. / 50 stk á 8060 kr. )
6 stk. í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Hátíðarliljur (páskaliljur) eru fjölærar og í flestum tilvikum harðgerðar. Þær vaxa best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna. Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.