Narcissus 'Pink Charm' - hátíðalilja
Hátíðalilja (Large Cup)
'Pink Charm' blómstrar stórum hvítum blómum með víðri, laxableikri hjákrónu sem lýsist með tímanum.
Verður um 40 cm á hæð.
(Áætlað verð: 6 stk á 1030 kr. / 50 stk á 6620 kr.)
6 stk í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Hátíðarliljur (páskaliljur) eru fjölærar og í flestum tilvikum harðgerðar. Þær vaxa best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða hálfskugga. Laukarnir eru gróðursettir á þeirri dýpt sem samsvarar því að moldarlagið yfir laukunum sé tvöföld hæð laukanna. Eftir blómgun eru blómstönglarnir klipptir af, en laufið látið vera þar til það fölnar. Þannig safnast öll orkan í laukinn í stað þess að fara í fræmyndun. Þar sem laufið er ekki mjög fallegt á meðan það fölnar, er best að planta laukunum inn á milli fjölæringa sem hylja laufið.