Tulipa fosteriana 'Sweetheart' - eldtúlipani
Eldtúlipani (Tegundablendingar)
'Sweetheart' er sort af eldtúlipana sem blómstrar gulum og kremhvítum blómum.
Verður um 45 cm á hæð.
8 stk. í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér. Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki. Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.