Túlipani 'Prinses Irene'
Túlipani (Triumph)
'Prinses Irene' er tromp túlipani sem blómstrar appelsínugulum blómum.
Verður um 30-35 cm á hæð.
(Áætlað verð: 8 stk á 1210 kr. / 50 stk á 5920 kr.)
8 stk. í pakka
Ræktunarleiðbeiningar
Túlipanar blómstra yfirleitt bara vel fyrsta vorið eftir að þeir eru gróðursettir. Þó eru nokkrar undantekningar þar á, en það eru helst Darwin-blendingar (Darwin Hybrids) og nokkrar villitúlipana-tegundir sem eru fjölærar hér. Þeir þrífast best í frjóum, vel framræstum jarðvegi í sól eða skugga part úr degi og hávaxnari sortir þurfa sæmilega gott skjól til að blómstilkarnir brotni ekki í roki. Hæfileg gróðursetningardýpt er þreföld hæð lauksins, þ.e. moldarlagið yfir lauknum samsvarar tvöfaldri hæð hans.