Viola Callisto F1 'Black'
Fjólur
Fjólur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð. Callisto serían einkennist af þéttum, blómsælum plöntum. 'Black' er afbrigði sem blómstrar svo dökk fjólubláum blómum að þau virðast nánast svört.
Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.
20 fræ í pakka