Viola Inspire Deluxxe F1 'Rose Velour'
Stjúpur
Stjúpur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð. Inspire Deluxxe serían hefur þéttan, jafnan vöxt og stór blóm. 'Rose Velour' er afbrigði sem blómstrar dökk purpurarauðum blómum með dökkri miðju og ljósari geislabaug.
Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.
10 fræ í pakka