top of page
Viola Sorbet XP F1 'Raspberry'

Viola Sorbet XP F1 'Raspberry'

Fjólur

 

Fjólur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð.  Sorbet XP serían einkennist af þéttum, veðurþolnum plöntum með nokkuð stórum blómum á fjólu mælikvarða.  'Raspberry' er afbrigði sem blómstrar bleikum blómum með dökkri miðju.

 

Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga.  Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.

 

20 fræ í pakka

 

    kr310Price
    VAT Included
    Out of Stock

    Related Products

    bottom of page