Viola Ultima Radiance F1 'Mixed'
Fjólur
Fjólur eru sumarblóm sem henta vel í ker og út í beð. Ultima Radiance er stórblóma sería með blómstærð á milli hefðbundinna fjóluafbrigða og stjúpa. 'Ultima Radiance Mixed' er fræblanda í bleikum, gulum og fjólubláum blómlitum.
Sáð í janúar. Fræ hulið með fíngerðum vikri og haft við stofuhita fram að spírun. Fræ spírar betur í myrkri, svo betra að setja sáningarbox ekki undir ljós fyrr en fræið hefur spírað. Spírun eftir 7-10 daga. Blómgun um 3 mánuðum eftir sáningu.
20 fræ í pakka