top of page

'Paimio'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Origin

óþekktur

talin hafa einhver gen frá gullrós (Rosa foetida)

Height

um 1 - 1,5 m

Flower color

fölbleikur - kremhvítur

Flower arrangement

einföld

Flowering

einblómstrandi, júlí - ágúst

Fragrance

meðalsterkur

The age

-

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól

Soil

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

takmörkuð reynsla

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Foreign hardness scales:

USDA zone: 4b

Finnski kvarði: I-III

Þyrnirósarblendingur með einföldum blómum sem opnast fölbleik með kremgulri miðju og verða svo kremhvít. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. 

"Harðgerð finnsk þyrnirós, blómsæl og blómstrar um mánaðamót júní - júlí, ilmar vel. Hæð 1,5 m eða meira. H.2.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page