top of page

'Henry Hudson'

Ígulrósarblendingar (Hybrid Rugosa)

Origin

Svejda, Kanada, 1966

fræplanta af Schneezwerg

Height

1 - 1,5 m

Flower color

hvítur

Flower arrangement

fyllt

Flowering

lotublómstrandi, júlí - ágúst

Fragrance

sterkur

The age

-

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól

Soil

vel framræstur, lífefnaríkur, hæfilega rakur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerð, RHF1

Ígulrósarblendingar eru harðgerðir, lotublómstrandi runnar með stórum ilmandi blómum og margir þroska stórar, hnöttóttar, gulrauðar nýpur.  Ígulrós (Rosa rugosa) vex villt í Japan og öðrum stöðum í Austur-Asíu.


Eldri ígulrósarblendingar komu á markað frá 1890 - 1915, m.a. 'Hansa,' en fáir eftir þann tíma og eru þeir oft flokkaðir með nútímarunnarósum.  Ég flokka þá alla saman hér þar sem ígulrósarblendingarnir eru flestir harðgerðari en aðrar nútímarunnarósir.

Foreign hardness scales:

USDA zone: 3a

Skandínavíski kvarði: H7


Ígulrósarblendingur með hálffylltum, hvítum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Ætti ekki að klippa mikið niður, best að takmarka snyrtingu við að grisja burt eldri greinar. Hún er sögð mjög harðgerð og heilbrigð.


Þetta er ein af þeim rósum sem tilheyra kanadísku Explorer-seríunni. Henry Hudson var enskur landkönnuður sem fór í könnunarleiðangra víða um Kanada og austurhluta Bandaríkjanna. Hann gerði tvær tilraunir til að finna siglingaleið norðurleiðina til Kína og eru Hudsoná í New York og Hudsonflói nefnd eftir honum.


Explorer-serían er afrakstur ræktunarverkefnis á vegum kanadíska landbúnaðarráðuneytisins sem miðaði að því að rækta fram harðgerðar, heilbrigðar rósir sem þola kanadískar frosthörkur. Dr. Felicitas Svejdas hafði umsjón með verkefninu og ræktaði hún fram fjölda harðgerðra rósa á árunum 1961-1999, sem margar hafa reynst afar vel hér á landi. 


"Harðgerð kanadísk Rósa rugósa rós, mjög blómsæl. Hæð um 1 m. H.2.Ísl. Blómstar lengi í júlí, ilmar mikið."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page