'Agatha'
sh. 'Agathe de Francfort'; 'Frankfort Agathé'
Gallica rósir
Uppruni
óþekktur, fyrir 1815
Hæð
um 1 m
Blómlitur
bleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
sterkur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
takmörkuð reynsla
Gallica rósir eru blendingar Rosa gallica sem vex villt í S-Evrópu. Þær mynda þétta runna, með frekar grófu, fagurgrænu laufi. Blómin geta verið einföld eða mikið fyllt og litaskalinn er frá hvítum yfir í dökkrauða og fjólubláa liti. Sortir með einföldum blómum eru margar harðgerðari en þær sem eru með fylltum blómum. Þær þurfa allar gott skjól.
Skáldarósir eru blendingar af gallica rósum sem kenndar hafa verið við Rosa x francofurtana, en hún er blendingur Rosa gallica og Rosa cinnamomea. Það sem greinir þær frá öðrum gallica rósum er að þær eru heldur hávaxnari með grófgerðara laufi og margar heldur harðgerðari.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 4b
Skandínavíski kvarði: H6
Runnarós með fylltum, bleikum blómum. Blómstrar á eldri greinar og því ætti klipping að takmarkast við að snyrta burt kal.
Þessi rós er ein af gallica rósunum sem hafa verið kenndar við Rosa x francofurtana, sem er blendingur kanilrósar (Rosa cinnamomea) og Rosa gallica.