'Piccadilly'
Terósablendingar (Hybrid Tea)
Uppruni
Samuel D. McGredy IV, Norður-Írlandi, 1955
'McKredy's Yellow' (hybrid tea) x 'Karl Herbst' (hybrid tea)
Hæð
60 - 90 cm
Blómlitur
rauður og gulur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
síblómstrandi, júlí - september
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
viðkvæm
Terósablendingar urðu til við kynblöndun milli hinna viðkvæmu terósa og harðgerðari síblómstrandi blendinga. Útkoman varð glæsilegar plöntur sem voru harðgerðar um stærstan hluta vestur- og mið-Evrópu, síblómstrandi með stórum, fagurlega löguðum blómum í öllum litaskalanum að bláum undanskildum. Þær eru enn í dag vinsælustu garðrósirnar á heimsvísu. Því miður eru fæstar nógu harðgerðar til að þrífast vel hérlendis, þó nokkrar undantekningar séu þar á, en þær þurfa nokkuð nostur til að blómstra vel.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 6b
Skandínavíski kvarði: H3
Terósarblendingur með tvílitum, fylltum, blómum. Efraborð krónublaðanna er rautt, en neðra borðið gult. Viðkvæm og lifir varla úti. Þarf gróðurhús til að njóta sín.