top of page

'Abraham Darby'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

David Austin, Bretlandi, 1985

'Aloha' (terósablendingur) × 'Yellow Cushion' (floribunda)

Hæð

um 60 cm

Blómlitur

ferskjubleikur og bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

viðkvæm

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5b

Skandinavíski kvarði: H3

Nútíma runnarós frá David Austin með stórum, þéttfylltum, ferskjubleikum og bleikum blómum. Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og vetrarskýlingu. Þrífst best í gróðurhúsi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page