top of page

'Alibaba'

'Ali Baba'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Christopher H. Warner, Bretlandi, fyrir 2006

Hæð

60 cm

Blómlitur

laxableikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

Nútíma runnarós með klösum af fylltum, laxableikum blómum. Frekar viðkvæm rós sem þarf besta stað í garðinum og vetrarskýli, en nýtur sín best í gróðurhúsi. Er flokkuð sem nútíma klifurrós, en verður ekki mjög hávaxin utandyra hér á landi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page