top of page

'Bonica'

sh. 'Bonica 82'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Marie-Louise Meilland og Jacques Mouchotte, Frakkland, 1981

fræplanta af (Rosa sempervirens × 'Mademoiselle Marthe Carron' (wichurana blendingur) x 'Picasso' (floribunda)

Hæð

60 - 120 cm

Blómlitur

bleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

síblómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 6b

Skandinavíski kvarði: H5

Nútíma runnarós með stórum klösum af bleikum blómum sem lýsast með aldrinum. Hún þarf vetrarskýlingu og mjög hlýjan, skjólgóðan vaxtarstað til að blómstra vel utandyra. Í gróðurhúsi koma genin frá klifurrósarforeldrinu í ljós, þar verður hún rúmur 1,5 m á hæð og hlaðin blómum. Þarf stuðning a.m.k. í gróðurhúsi.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page