top of page

'Champlain'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Dr. Felicitas Svejda, Kanada, 1973

tvær ónefndar fræplöntur, önnur komin af Rosa kordesii

Hæð

um 1 m

Blómlitur

rauður

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, HRF - 3

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H5

Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, rauðum blómum.


Samuel de Champlain var franskur landkönnuður sem stofnaði nýlenduna Quebec og Nýja-Frakkland og er þekktur sem "faðir Nýja-Frakklands".

"Harðgerð rós á skjólsælum stað. Blómstrar mikið og lengi í júlí og ágúst. Er 70 cm á hæð. H.3. Ísl."

  - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page