top of page

'Cuthbert Grant'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Henry H. Marshall, Kanada, 1958

RSM18 (afkvæmi 'Crimson Glory' terósarblendings) x 'Assiniboine' (afkvæmi R. arkansana)

Hæð

90-120 cm

Blómlitur

dumbrauður

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

takmörkuð reynsla

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3

Skandínavíski kvarði: H5

Kanadísk nútíma runnarós úr kanadísku Parkland-seríunni sem blómstrar fylltum, dumbrauðum blómum. Þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page