top of page

'J. P. Connell'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Dr. Felicitas Svejda, Kanada, 1973

Hæð

um 1 m

Blómlitur

kremhvítur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, HRF - 3

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 2b

Skandínavíski kvarði: H6

Nútíma runnarós úr kanadísku Explorer-seríunni, ræktuð af Dr. Felicitas Svejda. Hún blómstrar fylltum, kremhvítum blómum með fölgulu skini í nýútsprungnum blómum.


J. P. Connell er eina rósin í Explorer-seríunni sem ekki er nefnd eftir kanadískum landkönnuði. J. P. Connell (1926-2012) var aðstoðar landbúnaðarráðherra í Kanada á níunda áratug síðustu aldar.

"Kanadisk rós, óreynd. Blómstrar í júlí, ilmar lítið.""

  - Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page