top of page

'Morden Sunrise'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Lynn M. Collicutt og Campbell G. Davidson, Kanada, 1991

'Sunsprite' (floribunda) x RSM T2 (ræktunarrós komin af 'Prairie Princess')

Hæð

um 70 cm

Blómlitur

apríkósugulur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

lotublómstrandi, júlí - september

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf skjólgóðan vaxtarstað

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3b

Skandínavíski kvarði: H6

Kanadísk nútíma runnarós úr kanadísku Parkland-seríunni sem blómstrar hálffylltum, gulum blómum, sem opnast appelsínugul en fölna og verða fölgul með bleikum jöðrum. Þarf sólríkan og skjólgóðan vaxtarstað.

"Harðgerð Kanadisk rós á skjógóðum stað. Blómstrar vel um máðamót júlí - ágúst ilmandi blómum. Er um 80 cm.á hæð. H.3.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page