top of page

'Penny Lane'

Nútíma runnarósir (Modern Shrub)

Uppruni

Harkness, Bretlandi, 1998

'Ann Harkness' (floribunda klasarós) x 'New Dawn' (klifurrós)

Hæð

60 cm

Blómlitur

föl ferskjubleikur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júlí - ágúst

Ilmur

frekar daufur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

frjór, lífefnaríkur, hæfilega rakur, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

frekar viðkvæm

Rósir sem komið hafa fram á síðustu 100 árum og passa ekki í ofangreinda flokka eru yfirleitt flokkaðar sem nútíma runnarósir.  Þær líkjast oft stórvöxnum terósarblendingum eða klasarósum og flestar líkjast á engan hátt runnum við íslenskar aðstæður.  Þær myndu flestar flokkast sem beðrósir hér.  Sumar eru harðgerðari en fyrrgreindir flokkar nútímarósa og líklegri til að standast íslenskar aðstæður.


Nútíma klifurrósir eru í raun stórvaxnar nútíma runnarósir frekar en eiginlegar klifurrósir.   Þær hafa langar, veikburða greinar sem þurfa stuðning.  Flestar eru lotublómstrandi. Flestar þeirra verða ekki hávaxnar hér á landi og eru því flokkaðar með nútíma runnarósunum hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5b

Skandinavíski kvarði: H4

Nútíma runnarós með fylltum, ferskjubleikum blómum sem fölna með aldrinum nánast hvít.  Hún þarf sólríkan vaxtarstað í góðu skjóli og vetrarskýlingu. Er flokkuð sem klifurrós, en verður ekki hávaxin hér.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page