Rosa moyesii
Meyjarós
Meyjarósir
Uppruni
vex villt í Kína
Hæð
2 - 3 m
Blómlitur
bleikur eða rauður
Blómgerð
einföld
Blómgun
einblómstrandi, júlí - ágúst
Ilmur
daufur
Aldin
rauðgular nýpur
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
næringarríkur, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
harðgerð, RHF2
Villirósir eru, eins og nafnið bendir til, villtar tegundir og sortir af þeim sem eru ekki mikið kynblandaðar. Það eru um 150 villtar tegundir rósa sem vaxa á norðurhveli jarðar og geta verið mjög breytilegar innan tegundar. Þessar rósir eru formæður allra garðrósa.
Meyjarósir eru lítið kynbættir blendingar af meyjarós, R. moyesi.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
USDA zone: 5
Norræni kvarði: H6
Mjög stórvaxin runnarós sem blómstrar bleikum eða rauðum blómum. Þroskar rauðgular nýpur. Nokkuð harðgerð.