top of page

'Aïcha'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Petersen, Danmörku 1966

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

gulur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól - hálfskuggi

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf nokkuð skjólríkan vaxtarstað, líklega RHF3

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 5a

Skandínavíski kvarði: H6

Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, gulum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Kelur ekki mikið í góðu skjóli og blómgun því nokkuð örugg. Blóm nokkuð regnþolin. Blendingur af þyrnirósinni 'Guldtop' og terósarblendingnum 'Souvenir de Jacques Verschuren'

"Falleg ljósgul blóm sem ilma. Vex við suðurvegg án vetrarskýlis og blómstrar vel. Kelur lítið."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page