top of page

'Frühlingsgold'

sh. 'Spring Gold'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Kordes, Þýskalandi, 1937

Hæð

ca. 1,5 m

Blómlitur

fölgulur

Blómgerð

hálffyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

þarf nokkuð skjólríkan vaxtarstað, líklega RHF3

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 4b

Skandínavíski kvarði: H5

Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, gulum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þarf skjólgóðan stað, annars kelur hún mikið. Blómstrar ekki vel ef hún fær of köfnunarefnisríkan áburð. 


Blendingur af fölgula þyrnirósarblendingnum 'Hispida' og terósarblendingnum 'Joanna Hill'.

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page