top of page

'Kakwa'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Wallace, Kanada, fyrir 1973

þyrnirós (Rosa pimpinellifolia) x óþekktur frjógjafi

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

hvítur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

sterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

nokkuð harðgerð, RHF2

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone:  2b

Skandínavíski kvarði:  H8

Þyrnirósarblendingur með fylltum, kremhvítum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Hún fær rauðleita haustliti. 

"Mjög harðgerð þyrnirós, sannkölluð drottning, alþakin blómum upp í tveggja metra hæð um miðjan júlí. Ilmar mikið. H.1.Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page