top of page

'Kilwinning'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Uppruni

Wright, Kanada, 1948;

Rosa pimpinellifolia var. altaica x 'Persian Yellow'

Hæð

1,5 - 2 m

Blómlitur

fölgulur

Blómgerð

fyllt

Blómgun

einblómstrandi, júní - ágúst

Ilmur

meðalsterkur

Aldin

-

Lauflitur

grænn

Birtuskilyrði

sól

Jarðvegur

vel framræstur, sendinn

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Harðgerði

harðgerð, RHF1

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Erlendir harðgerðiskvarðar:

USDA zone: 3a

Þyrnirósarblendingur með fylltum, fölgulum blómum. Hún blómstrar á eldri greinar, svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa kal í burtu. Þrífst best í sól og sendnum, vel framræstum jarðvegi. Eins og með margar aðrar kanadískar rósir, eru blómin viðkvæm fyrir rigningu.

"Mjög harðgerð þyrnirós frá Kanada. Blómstrar mikið frá júlíbyrjun og til loka júlí, verður 2 m á hæð og ilmar mikið, en galla hefur hún henni líkar illa við rigningu. H.1. Ísl."

-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbæ, 2009

Áttu mynd eða hefurðu reynslu af þessari plöntu?

Þú getur deilt myndum og reynslusögum hér.

bottom of page