![]() |
---|
'Staffa'
Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)
Uppruni
óþekktur
Hæð
1 - 1,5 m
Blómlitur
ljósbleikur
Blómgerð
fyllt
Blómgun
einblómstrandi, júní - júlí
Ilmur
daufur
Aldin
-
Lauflitur
grænn
Birtuskilyrði
sól
Jarðvegur
sendinn, vel framræstur
pH
súrt - hlutlaust - basískt
Harðgerði
nokkuð harðgerð, líklega RHF2
Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm. Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm. Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.
Erlendir harðgerðiskvarðar:
Skandínavíski kvarði: H6
Þyrnirósarblendingur með fylltum, ljósbleikum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómgast á eldri greinar svo snyrting ætti að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar. Blómin eru svolítið viðkvæm fyrir rigningu.
"Harðgerð þyrnirós af óþekktum uppruna. Blómstrar að áliðnum júli, lítill ilmur. Hæð um1,5.m. H.2.Ísl."
-Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbær, 2009