top of page

'Totenvik'

Þyrnirósarblendingar (Hybrid Spinosissima)

Origin

óþekktur, norsk fundrós, fannst í Totenvik, Noregi

Height

1 - 1,5 m

Flower color

hvítur

Flower arrangement

hálffyllt

Flowering

einblómstrandi, júní - ágúst

Fragrance

meðalsterkur

The age

-

Leaf color

grænn

Lighting conditions

sól

Soil

sendinn, vel framræstur

pH

súrt - hlutlaust - basískt

Toughness

harðgerð, RHF1

Þyrnirósarblendingar blómstra snemma eins og þyrnirósirnar, sem blómstra fyrstar rósa. Þeir hafa margir fíngert lauf þyrnirósarinnar og frekar lítil, einföld eða fyllt blóm.  Eins og þyrnirósin þroska margir þeirra svartar, hnöttóttar nýpur. Flest yrki bera hvít eða bleik blóm.  Gul yrki eru sum blendingar þyrnirósar og gullrósar (R. foetida). Flestir þyrnirósarblendingar komu fram á 19. öld og fyrri hluta 20. aldar, en þó eru nokkrir sem komu fram eftir 1950 og geta því varla talist til antíkrósa. Þeir eru allir flokkaðir saman hér.

Foreign hardness scales:

USDA zone: 5b

Skandínavíski kvarði:  H8

Þyrnirósarblendingur með hálffylltum, hvítum blómum. Þrífst best í sól og vel framræstum jarðvegi. Blómstrar á eldri greinar og snyrting ætti því að takmarkast við að klippa burt kal og gamlar greinar. Blóm viðkvæm fyrir rigningu.

"Mjög harðgerð norsk þyrnirós sem blómstrar snemma í Júlí og svo aftur lítilsháttar í águstlok. Frekar ilmlítil og er um1 m á hæð. H.1.Ísl."

- Kristleifur Guðbjörnsson, Mosfellsbær, 2009

 


Do you have a photo or experience with this plant?

You can share photos and experiences here.

bottom of page